Persónuverndarstefna SEG HOLDINGS

Persónuverndarstefna okkar gildir um allar þær persónugreinanlegar upplýsingar sem fyrirtækið kann að safna gegnum vef okkar eða með öðrum rafrænum samskiptum.

SEG HOLDINGS, kt. 440717-1280 hlítir lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga ná ekki til lögaðila.

SEG HOLDINGS hefur persónuvernd og öryggi að leiðarljósi í allri meðferð upplýsinga um viðskiptavini sína og ber ábyrgð á þeim gögnum sem fyrirtækið safnar.

SEG HOLDINGS selur aldrei persónugreinanlegar upplýsingar um viðskiptavini sína.

SEG HOLDINGS leitast við að takmarka vinnslu persónugreinanlegra upplýsinga og safnar ekki ónauðsynlegum upplýsingum um viðskiptavini sína né starfsmenn. Gildir það um heimsóknir á vef okkar og önnur rafræn samskipti.

Þú getur lesið þér til um réttindi þín á vef Persónuverndar.


Hvernig safnar SEG HOLDINGS upplýsingum um þig?

Þegar þú nýtir þér vef okkar – www.segledsolutions.com – þá getur þú þurft að gefa upp tilteknar upplýsingar og einnig verða til upplýsingar um heimsókn þína.

Dæmi um upplýsingar sem þú gefur upp eru nafn, netfang og símanúmer*.

Dæmi um upplýsingar sem verða til við heimsókn þína eru persónugreinanlegar upplýsingar á borð við nafn, netfang og símanúmer. Landfræðilegar upplýsingar (hvar þú ert stödd/staddur), tungumálastillingar, vafrastillingar og IP tala.

Án þessara upplýsinga getur SEG HOLDINGS ekki uppfyllt óskir þínar um viðskipti og þjónustu.


Hvað notar SEG HOLDINGS til að safna upplýsingum?

Vefur SEG HOLDINGS er í rekstri hjá Blue Host og nýtur þjónustu sem gert hafa vinnslusamning við SEG HOLDINGS. í samræmi við kröfur Persónuverndar.

SEG HOLDINGS notar Google Analytics til vefmælinga. Í gegnum það eru ýmis atriði skráð eins og tími heimsókna á vefinn, dagsetning, gerð tækis, vafra og stýrikerfis. Kynntu þér hvernig Google notar gögn þegar þú heimsækir vef okkar.

SEG HOLDINGS notar hugbúnað Mailchimp sem til að senda meðlimum í á póstlista upplýsingar um nýjar vörur, tilboð og í sambærilegum markaðslegum tilgangi.

SEG HOLDINGS notar netspjallið Facebook Messenger til að viðskiptavinir geti haft samband beint við starfsmann í gegnum vefinn. Kynntu þér persónuverndarstefnu Facebook Messenger

SEG HOLDINGS notar vafrakökur (e. cookies) og þegar þú smellir á „Samþykkja“ ertu að leyfa okkur að nota vafrakökur.


Skilmálar vafrakaka

Vafrakökur eru litlar textaskrár, nokkurs konar fótspor sem vistast í tölvu notandans. Þær eru notaðar til að bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu til samræmis við auðkenninguna ásamt því að greina heimsóknir á vefsíðuna.

Aðrar vefsíður eiga ekki að geta lesið upplýsingarnar sem eru geymdar í textaskránni. Með notkun vafraköku öflum við vitneskju um notkun á vefnum og hvaða efni notendur skoða og getum því aðlagað vefinn betur að þörfum þeirra.

Með því að samþykkja skilmála um notkun á vafrakökum er okkur m.a. veitt heimild til þess að safna og greina upplýsingar eins og t.d.:

Fjöldi gesta og fjöldi innlita frá gestum

Lengd innlita gesta

Hvaða síður innan vefsins eru skoðaðar og hversu oft

Hvaða stýrikerfi og vafrar eru notuð til að skoða vefinn

Hvaða leitarorð af leitarvélum vísa á vefinn

Hvaða vefsvæði vísaði notanda á vefinn

Hvenær dagsins vefurinn er skoðaður

Allar upplýsingar sem kökurnar gefa okkur eru nafnlausar og eru engar persónulegar upplýsingar vistaðar. Engum upplýsingum er deilt með þriðja aðila.

Í flestum vöfrum er hægt að breyta öryggisstillingum svo að þeir taki ekki á móti kökum. Einnig á að vera hægt að eyða þeim. Nánari upplýsingar um hvernig það er gert má finna í stillingum flestra vafra.

Upplýsingar frá vafrakökum eru geymdar í 30 daga.


Réttur þinn

Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við kunnum að hafa um þig. Þú getur líka í sumum tilvikum átt rétt á að upplýsingar verði leiðréttar eða þeim eytt.

Persónuvernd heldur úti upplýsingavef fyrir almenning.

Ef þú vilt fá upplýsingar um persónugreinanlegar upplýsingar sem við kunnum að hafa um þig getur þú sent okkur tölvupóst á info@segholdings.com